já þá sá ég það
að hún Elva mín klukkaði má ég nú ekki sleppa því að svara
þessum skemmtilegu spurningum:
4 störf sem ég hef
unnið :
1. sko fyrst þá var það þegar ég og Elva (Rose) fórum að vinna í
síldinni þegar síldin var handskorin í tunnur og vorum við saman á
borði og vorum ekki nema svona ca 12-13 ára held ég.. mikið gaman
þar og var þetta svona gamaldags akkorðsvinna og við vorum bara
helvíti harðar þar...
2. svo var það
unglingavinnan.. það var eginlega bara leiðinlegt þar.. enda ekki
gaman að týna rusl, raka og róta í beðum... nei nei bara leiðinlegt
það..
3. svo var það síldin aftur en þá var þetta orðið dálítið
nútímanlegra semsagt einsog það er í dag og var það bara mjög fínt,
góð laun og auðveld vinna.
4. svo er það sjórinn.. góð laun og frekar auðveld vinna
þannig bara svolítið flókinn en þegar maður er kominn á skrið þá er
þetta leikur einn (allavega á kolmuna) erfiðara á ísfiski... ekkert
bara fyrir stráka.. nei nei..
4 bíómyndir sem ég
get horft á aftur og aftur :
1. shrek 2.. alltaf gaman af þessari.. fyndin og
skemmtileg mynd þar á ferð..
2. white chicks þessi er bara fyndin finnst mér
allavega.
3. ace ventura.. á hana samt ekki en get alltaf horft á hana ef
ég fæ tækifæri til.
4. Finding Nemo.. góð teiknimynd þar á ferð.
4 staðir sem ég hef búið
á :
1.Hafnarbygg 39.. það var eginlega fyrsati staðurinn sem
ég bjó á sem ég man eftir en annars þá bjó ég fyrstu mánuðina
eitthvað annarstaðar sem ég man ekki hvar er.. en þá bjó ég á
Hafnarbyggðini til 13-14 ára aldurs.
2. Skógar 2 þangað fluttum við þegar ég er 13 ára minnir
mig.. og búa foreldrar mínir enn þar en eru að fara að flytja eða
allavega reyna það..
3. nú svo var það
á Akureyri þar sem ég bjó með ástinni minni á Þórunnarstrætinu í
húsi sem afi Arnars og amma eiga.. við bjuggum þar bara meðan við
vorum í skóla..
4. Kolbeinsgata á vopnó.. já hér búum við núna og ætlum að
vera hér þar til um mitt sumar eða eitthvað þannig.
4 sjónvarpsþættir sem ég elska að
horfa á :
1. þá er það LOST (I love it)
2. Desparate
houswife
3. sex in the
city
4. CSI
4 staðir sem ég
hef verið í fríi á :
1. Benidorm.. fór með famelíunni þangað sumarið 2000 minnir mig
og vorum þar í 2 vikur..
2. Danmerkur ferðin sem ég fór í með mínum bekk í lok
grunnskólagöngu minnar.
3. bústaðaferðir með fjölskyldunni minni og/eða
Arnars.
4. svo bara heima.. gott að vera í fríi heima líka.
4
vefsíður
sem ég skoða daglega :
1. blogg síður bara margar þegar ég er byrjuð.
2. Ljosmodir.is
3. fasteignasíður
4. einkabanki.is
4 besti
maturinn :
1. Jólamaturinn.. hambóhryggurog tilheyrandi.
2. pizzur
3.
lambahryggur
4. nautakjöt með bernessósu og frönskum
4 staðir
sem ég vildi vera á núna :
1. ég vil bara vera þar sem ég er núna
4 bloggarar
sem ég ætla að klukka :
1. Elín Jóhanna
2. Elva kristín
3. Elva Rún
4. enginn meir.